Flutningaskip vélarvana út af Rifstanga

Gert er ráð fyrir að varðskipið Freyja verði komið á …
Gert er ráð fyrir að varðskipið Freyja verði komið á staðinn eftir hádegi. Ljósmynd/Guðmundur St. Valdimarsson

Erlent flutningaskip varð vélarvana um fjórar sjómílur út af Rifstanga í nótt.

Laust fyrir klukkan þrjú var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar kallaðar út ásamt áhöfninni á varðskipinu Freyju.

Auk þess var íslenskt togskip sem var í nágrenninu beðið um að halda á staðinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.

Létu akkeri falla

Áhöfninni um borð í flutningaskipinu tókst að stöðva rek skipsins, sem stefndi í átt að landi, með því að láta akkeri þess falla.

Er skipið nú um þrjár sjómílur frá landi og akkeri þess halda. Vindur er hægur á staðnum og ölduhæð um tveir metrar. 

Mesta hættan liðin hjá

Þegar mesta hættan var liðin hjá voru sjóbjörgunarsveitir afturkallaðar ásamt togskipinu sem var til taks á staðnum.

Áætlað er að varðskipið Freyja verði komið á staðinn eftir hádegi en þá verður tekin ákvörðun með útgerð skipsins með hvaða hætti það verði dregið af staðnum. Þá er þyrlusveit Landhelgisgæslunnar í viðbragðsstöðu á Akureyri ef á þarf að halda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »