Breyta og bæta hafnarmannvirki

Til hægri er Suðurvararbryggja. Gamla hluta hennar er mokað út …
Til hægri er Suðurvararbryggja. Gamla hluta hennar er mokað út en í stað hennar kemur bryggja með 165 metra löngum viðlegukanti. Fremst á myndinni er aðstaða fyrir útflutning á vikri. Fjær er Austurgarður sem nú er verið er að stytta til að skapa meira snúningsrými í höfninni. mbl.is/Sigurður Bogi

Vænst er að í lok sumars verði lokið miklum breytingum og stækkun á hafnaraðstöðu í Þorlákshöfn. Vöruflutningar með stórskipum sem Smyril-Line gerir út fara mjög vaxandi sem með öðru kallar á að bætt sé úr.

Fyrst er þar til að taka að svonefnd Suðurvararbryggja, sem komin var til ára sinna, var fjarlægð en á svipuðum stað útbýr verktakafyrirtækið Hagtak hf. nú aðra bryggju með 165 metra löngum viðlegukanti. Þar verður til aðstaða meðal annars ætluð skipum sem eru í vikurflutningum milli Íslands og Evrópu.

Garðurinn áður lengdur

Áður hefur stórgrýttur hafnargarður fram af Suðurvararbryggjunni verið lengdur um 250 metra. Andspænis honum er Austurgarður. Hann er nú verið að stytta um 80 metra í því skyni að stór skip sem koma í höfnina hafi þar meira snúningsrými.

Þá framkvæmd hefur Suðurverk hf. með höndum en það fyrirtæki hefur komið að ýmsum verkum þarna á svæðinu undanfarin ár. Svartaskersbryggja, þar sem fiskiskip leggjast að, hefur svo nýlega verið endurbætt með stálþili.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Mykines, nefnt eftir einni af Færeyjunum átján, kemur vikulega til …
Mykines, nefnt eftir einni af Færeyjunum átján, kemur vikulega til Þorlákshafnar sem nú er orðin ein af stærri frakthöfnum landsins. mbl.is/Sigurður Bogi
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »