Fjárfestingin 115 milljarðar króna

Stöð First Water vestan við Þorlákshöfn. Eldiskerin í fullbyggðri stöð …
Stöð First Water vestan við Þorlákshöfn. Eldiskerin í fullbyggðri stöð verða alls 170 talsins og í þau mun þurfa alls um 30.000 lítra á sek. af sjó sem dælt verður úr holum sem eru boraðar þarna fram við sjóinn. mbl.is/Sigurður Bogi

Kostnaður við uppbyggingu á fiskeldisstöð First Water við Þorlákshöfn verður samanlagt liðlega 115 milljarðar króna og er þetta eitt stærsta verkefni á Íslandi sem einkaaðilar hafa nokkru sinni tekist á hendur.

Áætlanir gera ráð fyrir að þegar allt er í höfn verði samanlögð framleiðsla á laxi í stöðinni um 50 þúsund tonn. „Þessu verkefni er skipt í sex hluta og um 10% af því er lokið. Allt hefur gengið upp til þessa en það er mikið verkefni fram undan á næstu árum,“ segir Eggert Þór Kristófersson forstjóri First Water hf. í samtali við Morgunblaðið.

Eftirspurnin er vaxandi, segir Eggert Þór Kristófersson.
Eftirspurnin er vaxandi, segir Eggert Þór Kristófersson. mbl.is/Sigurður Bogi

Einn lax eða þrír þorskar

Fiskeldisstöð First Water er skammt vestan byggðar í Þorlákshöfn. Þegar á þær slóðir kemur sést strax að mikið er umleikis; byggingakranar og stórvirkar vinnuvélar nærri nýlegum byggingum.

Þetta er niðri við sjó, en stöðin sjálf stendur á hraunkambi. Þar undir er mikil auðlind; gnægð af vatni á 20 metra dýpi og enn neðar jarðsjór sem er dælt upp og í eldiskörin. Í fullbyggðri stöð verða eldiskerin á svæðinu alls 170. Í þau mun þurfa alls 30 þúsund sekúndulítra af rennandi sjó, úr 180 borholum sem nú eru teknar hver af annarri.

„Eftirspurn eftir afurðum af laxi er mikil um allan heim og í hraðari vexti en framleiðendur hafa mætt. Markaðurinn er nú um þrjár milljónir tonna á ári og hefur hann stækkað um 3-5% á ári frá aldamótum. Og þarna stígum við inn með okkar framleiðslu sem verður markaðssett til náttúrugæða. Auknar vinsældir sushi-rétta eiga stóran þátt í því hve lax er orðinn eftirsóttur. Ekki er fjarlægt að fiskeldi verði í einhverri framtíð stærri atvinnugrein en hefðbundinn sjávarútvegur samanber þumalputtareglu sem Þorsteinn Már Baldvinsson setti fram á ráðstefnu hjá SFS árið 2022 hvar hann talaði um einn lax og þorskana þrjá. Slíkt var þá tilvísun í að jafnmikið fæst fyrir einn fimm kílóa lax og þrjá jafnþunga þorska,“ segir Eggert Þór.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »