Afhentu 46.000 undirskriftir gegn opnu sjókvíaeldi

Félagar í NASF vísuðu til norsku kafarana sem komu til …
Félagar í NASF vísuðu til norsku kafarana sem komu til landsins í fyrra til að sinna rekköfun í ám sem taldar voru geyma eldislaxa. Ljósmynd/Valgarður Gíslason

Fulltrúar Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF) afhentu Alþingi í dag 46.000 undirskriftir gegn opnu sjókvíaeldi.

Í kjölfar umhverfisspjalla sem áttu sér stað síðastliðið haust þegar íslenskar ár fylltust af eldislöxum hóf Verndarsjóður villtra laxastofna undirskriftasöfnun, ásamt samstarfsaðilum undir heitinu „Þetta leyfðum við, bætum fyrir það“. 

Byggði heiti söfnunarinnar á þeirri staðreynd að stofnstærð villta Norður-Atlantshafslaxins hefur minnkað um 70% á undanförnum 25 árum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá NASF

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra veitti undirskriftunum viðtöku.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra veitti undirskriftunum viðtöku. Ljósmynd/Valgarður Gíslason

Reynst ómögulegt að halda eldislaxi í sjókvíum

„Í sjókvíaeldi á Íslandi er notast við framandi, frjóa, norska tegund og vitað er að eldisfyrirtækjum hefur alls staðar í heiminum reynst ómögulegt að halda eldislaxinum í sjókvíum,“ segir í tilkynningunni og því næst útskýrt:

„Ein afleiðing þessa var eitt stærsta umhverfisslys Íslandssögunnar þegar 3.500 eldislaxar sluppu úr sjókví Arctic Fish á Patreksfirði með þeim afleiðingum að á fimmta hundrað eldislaxa veiddust í þekktum ám um allt land og rataði sá súrrealíski farsi beint í áramótaskaupið.“

Ekki er enn vitað hversu mikið af eldislaxi náði að hrygna í íslenskum ám síðastliðin vetur, en það mun taka einhver ár að ná utan um umfang tjónsins, segir í tilkynningunni. 

Villti íslenski laxinn í útrýmingarhættu

„Eins og útlitið er með lagareldisfrumvarpið núna þá mun villti íslenski laxastofninn deyja út á komandi árum ef ekki verður gripið strax til aðgerða.“

Því hefur NASF, ásamt samstarfsaðilum á borð við Icelandic Wildlife Fund, Landssamband Veiðifélaga, Aegis, Völu Árnadóttur, Landvernd, VÁ!, Patagonia og fleiri, lagt gríðarlega áherslu á að Ísland sé síðasta athvarf villtra laxastofna í Norður-Atlantshafi, segir í tilkynningunni. 

„Þessi samtök ásamt yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar telur að það verði að stöðva sjókvíaeldi, annars er meðvitað verið að endurtaka mistök annara þjóða og þar með dauða dæma villtan lax og náttúru.“

Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan: 

Frumvarp þriggja matvælaráðherra Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs – hefur reynst gríðarlega umdeilt eftir að frumvarpið tók stakkaskiptum eftir umsagnarferli en fjöldi náttúruverndarsamtaka vilja meina að núverandi drög frumvarpsins nái alls ekki markmiðum þess. Í frumvarpinu segir orðrétt: „Markmið laga þessara er að skapa skilyrði til sjálfbærrar uppbyggingar lagareldis og efla þannig verðmætasköpun, atvinnulíf og byggð í landinu, stuðla að ábyrgu lagareldi og tryggja verndun villtra nytjastofna.“ Gagnrýnin lítur helst að því að frumvarpið skapar ekki skilyrði sjálfbærrar uppbyggingar né tryggir vernd villtra laxastofna og umhverfis. Því hafa náttúruverndarsamtök auk fjölda aðila sem hafa miklar áhyggjur af stöðu villta laxastofnsins og lífríki Íslands mótmælt frumvarpinu harðlega. Þá hafa erlend samtök og náttúruverndarinnar látið málið til sín taka.

Í kjölfar umhverfisspjalla sem áttu sér stað síðastliðið haust þegar íslenskar ár fylltust af eldislöxum hóf Verndarsjóður villtra laxastofna (NASF) undirskriftasöfnun ásamt samstarfsaðilum undir heitinu „Þetta leyfðum við, bætum fyrir það“ en þar er byggt á þeirri staðreynd að stofnstærð villta Norður-Atlantshafslaxins hefur minnkað um 70% á undanförnum 25 árum. Í Noregi, Skotlandi, Kanada og Bandaríkjunum er lítið orðið um ómengaða stofna Atlantshafslax vegna erfðablöndunar við eldislax og því þarf að leggja af allt sjókvíaeldi við strendur Íslands. Í sjókvíaeldi á Íslandi er notast við framandi, frjóa, norska tegund og vitað er að eldisfyrirtækjum hefur alls staðar í heiminum reynst ómögulegt að halda eldislaxinum í sjókvíum.

Ein afleiðing þessa var eitt stærsta umhverfisslys Íslandssögunnar þegar 3.500 eldislaxar sluppu úr sjókví Arctic Fish á Patreksfirði með þeim afleiðingum að á fimmta hundrað eldislaxa veiddust í þekktum ám um allt land og rataði sá súrrealíski farsi beint í áramótaskaupið. Ekki er enn vitað hve mikið af eldislaxi náði að hrygna í íslenskum ám síðastliðinn vetur og mun það taka einhver ár að ná utan um umfang tjónsins.

NASF, ásamt samstarfsaðilum á borð við Icelandic Wildlife Fund, Landssamband Veiðifélaga, Aegis, Völu Árnadóttur, Landvernd, VÁ!, Patagonia og fleiri hafa á undanförnum vikum lagt ríka áherslu að Ísland sé síðasta athvarf villtra laxastofna í Norður-Atlantshafi. Eins og útlitið er með lagareldisfrumvarpið núna þá mun villti íslenski laxastofninn deyja út á komandi árum ef ekki verður gripið strax til aðgerða. Þessi samtök ásamt yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar telur að það verði að stöðva sjókvíaeldi, annars er meðvitað verið að endurtaka mistök annara þjóða og þar með dauðadæma villtan lax og náttúru.

Undirskriftalisti með rúmlega 46 þúsund undirskriftum, var afhentur í dag forseta alþingis, matvælaráðherra og formanni atvinnuveganefndar með táknrænni athöfn þar sem „norskir“ rekkafarar afhentu illa farna eldislaxa úr pappa, með undirskriftum fólks árituðum á þá en hver lax táknar þannig meira en 11 þúsund undirskriftir. Laxinn sem sjá má á myndunum slapp úr kvíum Arctic Fish haustið 2023, og veiddist í á meira en 300 km frá sjókvíunum. Laxinn er illa étinn af lús, með djúp sár á höfði og því miður var þetta algeng sjón síðastliðið haust.

Skoðanakannanir á Íslandi sýna að 70% íslensku þjóðarinnar er mótfallin sjókvíaeldi og umhverfisslysum iðnaðarins, en einungis 10% eru fylgjandi iðnaðinum sem skapar einungis örfá störf á sama tíma og fjölda starfa og annarra verðmæta er fórnað.
NASF hvetur aðila sem annt er um villta laxastofninn og náttúru Íslands að mótmæla lagareldisfrumvarpinu með því að setja þrýsting á þingmenn síns kjördæmis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »