Ólíðandi stjórnsýsla

Skammt er til hefðbundins upphafs vertíðarinnar.
Skammt er til hefðbundins upphafs vertíðarinnar. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Þetta er alveg óskiljanlegt og ólíðandi stjórnsýsla hjá matvælaráðherra. Tafirnar valda augljóslega miklu tjóni og ég kaupi ekki lengur afsakanir ráðherrans um að ætla að skoða málið nánar,“ segir Teitur Björn Einarsson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið.

Viðbragða hans var leitað við því að enn hefur ekki verið brugðist við umsókn Hvals hf. um leyfi til hvalveiða, skammt er til hefðbundins upphafs vertíðarinnar og ljóst orðið að engar hvalveiðar munu eiga sér stað í sumar.

Teitur Björn vísar því algerlega á bug sem fram hefur komið hjá matvælaráðherra að hvalveiðar standi nú á einhverjum sérstökum tímamótum og að regluverk um veiðarnar sé flókið.

Kristján Loftsson,
Kristján Loftsson, mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Veiðarnar voru heimilaðar síðasta haust og ekkert hefur breyst í regluverkinu síðan. Það afsakar ekkert þessa töf. Þá er matvælaráðherra ekki heimilt að leggja til grundvallar ólögbundin og/eða ómálefnaleg sjónarmið sem ekki eiga sér stoð í lögum um hvalveiðar,“ segir Teitur Björn.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Styður þú þennan ráðherra?

„Ég styð þessa ríkisstjórn til góðra verka, en ætlast til þess að ráðherrarnir fari að lögum. Það er ekki hægt að styðja svona stjórnsýslu og hún lítur ekki vel út að mínu mati. Þetta er mjög alvarlegt mál,“ segir hann. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »