Koma til hafnar í Vestmannaeyjum í kvöld

Skútan óskaði eftir aðstoð skömmu eftir miðnætti í gær vegna …
Skútan óskaði eftir aðstoð skömmu eftir miðnætti í gær vegna vandræða. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarskipið Þór siglir nú vestur meðfram landinu með skútu í togi sem lenti í töluverðum vandræðum djúpt suður af landinu skömmu eftir miðnætti í gærkvöldi. 

„Þeir eru búnir að vera í fjögurra til fimm metra ölduhæð og 15 m/s vindi að norðan síðan í nótt,“ segir Jón Þór Víg­lunds­son, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bjarg­ar, sem gerir ráð fyrir að Þór komi með skútuna til hafnar í Vestmannaeyjum einhvern tímann í kvöld. 

Fólkið í skútunni orðið lúið

„Þegar þeir tóku skútuna í tog snemma í morgun þá stefndu þeir bara í norður, beint upp í ölduna og vindinn, til að komast upp í lygnari sjó,“ segir Jón Þór sem útskýrir að skútan hafi verið staðsett 60-70 mílur suðvestur af Vestmannaeyjum þegar útkallið barst. 

Aðspurður segir hann aðgerðina ganga vel en áréttir að þegar sjólag er þetta slæmt og ölduhæð þetta mikið þá fari menn rólega. Auk þess eru tólf manns um borð í skútunni og segir Jón Þór þau orðin lúin. 

„Þau taka bara stuttar vaktir hvert og eitt við stýrið á skútunni, en það eru allir enn um borð í skútunni.“

Skútan lenti í töluverðum vandræðum 

Eins og mbl.is greindi frá í morgun barst björgunarskipinu Þór útkall vegna skútunnar skömmu eft­ir miðnætti í gær­kvöldi. Skútan hafði lent í töluverðum vandræðum þar sem segl hennar rifnaði og eldsneytismagnið var af svo skornum skammti að fólkið gerði ekki ráð fyrir að ná til Vestmannaeyja. 

Þór var sendur af stað með eldsneyti en í millitíðinni varð skútan vélarvana og stjórnlaus vegna þess að hún fékk tóg í skrúfuna. Þetta urðu þó ekki einu vandræðin því í morgun kom jafnframt smávægilegur leki á skútuna. 

Jón Þór segir lekann þó hafa verið viðráðanlegan og að nú sé hópurinn að dóla meðfram landinu í aðeins lygnari sjó heldur en í nótt. 

Strandveiðibátur dreginn til hafnar á Patreksfirði 

mbl.is greindi jafnframt frá því í morgun að strandveiðibátur hefði lent í vélarvandræðum norður af Patreksfirði og var björgunarskipið Vörður á Patreksfirði kallað út á áttunda tímanum vegna þess. 

Jón Þór segir þá björgunaraðgerð hafa gengið vel. Taug hafi verið komið fyrir í strandveiðibátinn og var Vörður kominn til hafnar á Patreksfirði með bátinn í togi rétt fyrir klukkan ellefu í morgun.

Taug var komið í strandveiðibátinn og hann dreginn til hafnar.
Taug var komið í strandveiðibátinn og hann dreginn til hafnar. Ljósmynd/Landsbjörg
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »