Ráðuneyti biðst velvirðingar á misskilningi ráðherrans

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf..
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf.. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Júlíus

„Ummæli ráðherra í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær [fimmtudag] voru byggð á misskilningi og er beðist velvirðingar á því.“

Svo segir í tölvupósti starfsmanns matvælaráðuneytisins til Kristjáns Loftssonar, framkvæmdastjóra Hvals hf., sem honum barst í gær. Þar var svarað fyrirspurn Hvals vegna ummæla Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra í fyrirspurnatíma á Alþingi sem voru þau að fyrirtækið hefði frest til andmæla og að svara umsögnum 15 stofnana og hagaðila um umsókn fyrirtækisins til veiða á langreyðum til dagsins í gær en þá voru liðnir tveir dagar frá því Hval voru sendar umsagnirnar.

Í póstinum gengst ráðuneytið við því að enginn frestur til svars hafi verið tilgreindur. Þar kemur og fram að gert sé ráð fyrir að ákvörðun um afgreiðslu umsóknar Hvals liggi fyrir í byrjun næstu viku, nema Hvalur óski eftir lengri tíma til andmæla.

„Ákvörðun verður ekki tekin fyrr en afstaða Hvals hf. liggur fyrir og ráðuneytið hefur farið yfir sjónarmið félagsins,“ segir í pósti ráðuneytisins.

„Þessir Vinstri grænu ráðherrar hafa gefið sér fjóra og hálfan mánuð til að svara umsókninni og nú á að keyra málið áfram á 100. Svona stjórnsýsla gengur engan veginn,“ segir Kristján.

„Borgararnir eru algerlega berskjaldaðir, ef hægt er að vinna hlutina með þessum hætti,“ segir hann.

Kristján segir að fyrirtækið muni nýta andmælarétt sinn, en þó skorti enn upplýsingar um hve langur hann sé. Það segir hann vera í stíl við annað.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »