Í dag opnar stærsta málverkasýning sem sett hefur verið upp hér á landi þar sem sjá má stóran hluta af safneign Listasafns Reykjavíkur. Sýningin, sem nefnist Flæði, mun taka stöðugum breytingum á þeim þremur mánuðum sem hún hún stendur yfir, jafnvel á meðan gestir eru viðstaddir.
Verkin eru blanda af klassískum íslenskum málverkum og verkum sem koma sjaldnar fyrir augu almennings en um leið og sýningin fer fram gera starfsmenn safnsins úttekt á ástandi verkanna.
Mbl.is leit við á Kjarvalsstöðum í gær þegar verið var að setja sýninguna upp.