Verður Matt Damon svaramaður Clooney?

Leikarinn George Clooney og lögmaðurinn Amal Alamuddin.
Leikarinn George Clooney og lögmaðurinn Amal Alamuddin. mbl.is/AFP

Nýjustu fregnir af fyrirhuguðu brúðkaupi leikarans George Clooney og lögmannsins Amal Alamuddin eru þær að leikarinn Matt Damon verður svaramaður Clooney.

Clooney er búinn að biðja Damon að vera svaramaður í brúðkaupi sínu og Alamuddin, og hefur þar af leiðandi farið framhjá leikaranum Brad Pitt, sem er búinn að biðja Clooney að vera svaramaður sinn í brúðkaupi sínu og leikkonunnar Angelinu Jolie.

„Margir héldu að Brad Pitt yrði svaramaður Clooney af því að þeir hafa verið svo góðir vinir í mörg ár. En svo virðist sem hann sé nánari Damon. Auk þess var það þannig að eina kvöldstund er þeir voru á fylliríi gaf Clooney Damon loforð um að hann yrði svaramaður hans ef hann skyldi gifta sig. Pitt tók fréttunum vel,“ sagði heimildarmaður The Sun.

Leikarinn Matt Damon.
Leikarinn Matt Damon. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson