Khloé og Tristan fá sér McDonalds

Khloé Kardashian og Tristan Thompson í barnagleðinni sem þau héldu …
Khloé Kardashian og Tristan Thompson í barnagleðinni sem þau héldu í samstarfi við Amazon í mars. skjáskot/Instagram

Raunveruleikaþáttastjarnan Khloé Kardashian og körfuknattleiksmaðurinn Tristan Thompson sáust í fyrsta skipti opinberlega saman síðan dóttir þeirra fæddist í apríl. Ljósmyndarar náðu myndum af parinu í bílalúgu McDonalds í Woodland Hills í Los Angeles í gær.

Khloé flaug heim til Los Angeles með True á sunnudaginn og að hætti Kardashian fjölskyldunnar var haldin veisla. Fjölskyldan birti myndir af veislunni á samfélagsmiðlum en þetta var í fyrsta skipti sem True kom til Los Angeles. Athygli vakti að fögnuðurinn var aðeins til heiðurs Khloé og True og var Tristan ekki sjáanlegur. 

Hann virðist þó hafa verið á staðnum, en Khloé óskaði honum til hamingju með feðradaginn á mynd þar sem sást í hendur hans. 

Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir fyrir parið en stuttu fyrir fæðingu dóttur þeirra,TrueThompson, birtust myndir af framhjáhaldi Tristan. Um tíma leit út fyrir að leiðir þeirra myndu skilja, en nú virðast þauhafa náð að greiða úr flækjunum. Khloé hefur dvalið í Cleveland hjá Tristan síðan True fæddist.

Mommy’s Little Love

A post shared by Khloé (@khloekardashian) on May 26, 2018 at 2:13pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson