„Ég fór ekki mikið út“

Tom Cruise og Nicole Kidman giftu sig árið 1990 og …
Tom Cruise og Nicole Kidman giftu sig árið 1990 og skildu árið 2001. AFP

Nicole Kidman sagði í viðtali sem birtist í síðustu viku að það hefði veitt henni vernd frá kynferðislegri áreitni að hafa verið gift leikaranum Tom Cruise. Leikkonan sem tjáir sig sjaldan um tímann með Cruise útskýrði mál sitt betur í sjónvarpsþættinum Today í gær, mánudag. 

„Af því ég var gift 23 ára fór ég ekki í mikið af veislum og ég fór ekki mikið út. Ég var frekar mikið heima. Ég eignaðist mitt fyrsta barn 25 ára og ég var gift, ég átti fjölskyldu,“ segir Kidman og segist annaðhvort hafa verið að vinna eða verið heima þegar hún var með Tom Cruise. 

Kidman sagði að hún vildi ekki ræða fyrrverandi maka þar sem hún er hamingjusamlega gift og á tvö börn. Hún segir það líka vera ókurteisi gagnvart Tom Cruise að ræða þennan tíma sem og gagnvart núverandi maka hennar, Keith Urban. 

Nú er Nicole Kidman gift tónlistarmanninum Keith Urban.
Nú er Nicole Kidman gift tónlistarmanninum Keith Urban. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson