Greifynjan gefur út popplag

Alexandra greifynja var gift Jóakimi Danaprins. Greifynjan er nú búin …
Alexandra greifynja var gift Jóakimi Danaprins. Greifynjan er nú búin að gefa út lag. THOMAS BORBERG

Alexandra greifynja, fyrrverandi eiginkona Jóakims Danaprins, er tilbúin fyrir ný ævintýri og í dag, föstudag, gaf hún út lagið Wash Me Away. Lagið var gefið út til styrktar sænskri góðgerðarstofnun sem vinnur hjálparstarf í Afríku. 

Á vef BT kemur fram að Alexandra hafi alltaf haft gaman af því að syngja og lengi langað til að láta reyna á hæfileika sína. Hún sé nú stödd á stað í sínu lífi þar sem hún vilji prófa eitthvað nýtt. 

Alexandra er ekki eina í fjölskyldunni sem er að prófa sig áfram á nýjum sviðum en elsti sonur hennar og Jóakims Danaprins er hættur í hernum og farinn að sinna fyrirsætustörfum. 



Prinsinn Nikolai með fjölskyldu sinni eftir ferminguna í dag.
Prinsinn Nikolai með fjölskyldu sinni eftir ferminguna í dag. BT
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson