14 ára sagt að haga sér eftir aldri

Líf Millie Bobby Brown er töluvert frábrugðið því sem flestir …
Líf Millie Bobby Brown er töluvert frábrugðið því sem flestir jafnaldrar hennar lifa. AFP

Stranger Things-leikkonan Millie Bobby Brown fékk að heyra það frá nettröllum eftir að hún birti mynd af sér í þröngum snákaskinnskjól og á hælaskóm á Instagram um helgina. Brown sem er einungis 14 ára var meðal annars sagt að haga sér eftir aldri. 

„Þegar þú kemst á kynþroskaskeiðið og heldur að þú sért 25 ára,“ og „Þú ert svona 12 hvar í andskotanum er móðir þín,“ mátti sjá skrifað í athugasemdum við mynd leikkonunnar ungu eins og fram kemur á vef Yahoo Lifestyle

Fjölmargir fylgjendur Brown komu henni þó til varnar og sögðu ekkert vera að klæðaburðinum. 

Leikkona unga er kannski ekki á sama stað og flestir jafnaldrar hennar og tjáði sig um gagnrýnina. Hafði hún orð á því á Instagram að við byggjum í frábærum heimi ef fólk dreifði ást jafnhratt og það deilir hatri og neikvæðni. 

View this post on Instagram

write a caption

A post shared by mills 😋 (@milliebobbybrown) on Jan 11, 2019 at 7:54pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson