Rihanna í mál við föður sinn

Rihanna á snyrtivörufyrirtækið Fenty.
Rihanna á snyrtivörufyrirtækið Fenty. AFP

Söngkonan Rihanna er farin í mál við föður sinn en hún sakar hann um að nýta sér nafn hennar í þágu eigin frama í skemmtanabransanum. BBC greinir frá því að Rihanna haldi því fram að faðir hennar sé að reyna að hagnast á nafni hennar og koma fyrirtæki sínu á framfæri. 

Sakar hún föður sinn, Ronald Fenty, og viðskiptafélaga hans um að gefa til kynna að hún sé tengd fyrirtæki hans, Fenty Entertainment. Segir hún að framferði þeirra hafi skaðað Fenty-merkið hennar en það er nafn snyrtivörumerkis Rihönnu. Rihanna krefst þess að fyrirtækinu verði bannað að nota nafnið Fenty í viðskiptum sínum. 

Rihanna hefur greint frá því að hún eigi í erfiðu sambandi við föður sinn sem stofnaði fyrirtæki sitt árið 2017 í Kaliforníu með félaga sínum Moses Perkins. Í fréttatilkynningu á heimasíðu fyrirtækisins kom fram að Rihanna hefði verið með í að stofna fyrirtækið. Á öðrum tímapunkti var fyrirtækið í viðræðum fyrir hönd Rihönnu án hennar leyfis vegna 15 tónleika. 

Rihanna.
Rihanna. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson