Harry á annarri plánetu

Harry er sagður hafa breyst mikið síðan hann kynntist Meghan …
Harry er sagður hafa breyst mikið síðan hann kynntist Meghan sinni. mbl.is/AFP

Sumir breytast til hins betra þegar þeir hitta sálufélaga sinn en það virðist einmitt hafa átt sér stað þegar Harry hitti Meghan. Konunglegur sérfræðingur segir Harry vera á annarri plánetu miðað við hvernig hann var þegar hann var að vaxa úr grasi að því fram kemur á vef The Sun

Duncan Larcombe hefur skrifað lengi um Harry og segir hann allt annan mann en hann var áður. Mikið hefur breyst að hans mati frá því að prinsinn var unglingur og í hernum. „Harry er að segja allt rétt en segir það ekki eins og Harry svo að fólk sem tengdi við hann í mörg ár hugsar nú hvað sé í gangi, hvað hafi komið fyrir Harry?“

Nýlega var greint frá því að Harry og Meghan njóta þess að fara í nudd og fótsnyrtingu á fínu hóteli á meðan sonur þeirra sefur.

Félagar Harry úr hernum segja hann hafa mikið hafa breyst miðað við þessar fréttir. Harry sem heldur fyrirlestra um hvernig bjarga megi heiminum og reykir ekki né drekkur er ekki sá Harry sem gamlir félagar hans þekkja. 

„Fótsnyrting og nudd? Hann hefur breyst,“ sagði einn úr hernum. „Á dögum hans í hernum hefði hann hlegið ef einhver hefði boðið honum fótnsyrtingu.“

Meghan og Harry.
Meghan og Harry. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson