Fjölskyldan ekki enn búin að gefast upp á Mama June

Fjölskyldan heldur í vonina.
Fjölskyldan heldur í vonina. Skjáskot/YouTube

Fjölskylda Mama June gerði nýlega enn eina tilraunina til að fá raunveruleikastjörnuna í meðferð. Henni verður þó ekki haggað og er hún enn að misnota fíkniefni og í er sambandi með Geno. 

Fjölskyldan hefur reynt allt sitt síðustu mánuði til að bjarga June, en hún þráast við. Þau viljað að hún hætti með kærastanum sínum, sem þau segja að hafi slæm áhrif á hana. Þau voru handtekin saman í vor fyrir vörslu á fíkniefnum. 

Parið kom fyrir dómara í Alabama á miðvikudaginn í síðustu viku og sást til tökuliðs þáttanna Mama June: From Not To Hot á staðnum. Þar var einnig Joanne, systir June, og reyndi hún að ná til systur sinnar. June og Geno vildu hinsvegar lítið tala við hana og kölluðu blótsyrði að ljósmyndurum á staðnum.

June, sem réttu nafni heitir June Shannon, og Geno yfirgáfu hús sitt í Georgíu-ríki og fluttu í húsbíl í sumar. Þau búa enn í húsbílnum. 

Yngsta dóttir hennar, Honey Boo Boo, hefur gefið það út að hún ætlar ekki að flytja til móður sinnar fyrr en hún leitar sér hjálpar við fíkniefnavandanum og hættir með Geno. Hún flutti frá henni snemma á þessu ári og býr hjá eldri systur sinni Pumkin. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson