Klámsíðan Pornhub greindi frá því nú eftir helgina að orðið „Joker“ hafi öðlast nýjar vinsældir í leitarvél hennar.
Svo virðist sem hinn nýi jóker, Joaquin Phoenix, hafi heillað notendur Pornhub sem leituðu 184 þúsund sinnum að Joker á laugardaginn og tæplega 300 þúsund sinnum á sunnudaginn.
Kvikmynd Todd Philipps, Joker, var frumsýnd um allan heim um helgina og hefur hlotið harða dóma gagnrýnenda. Myndin virðist þó hafa fallið í kramið hjá einhverjum en á fyrstu 4 dögunum eftir frumsýningu var leitað 741 þúsund sinnum að Jókernum á klámsíðunni.
Samkvæmt TMZ hefur þetta gerst áður í kringum frumsýningar á kvikmyndum byggðum á teiknimyndasögum. Þegar Suicide Squad kom út árið 2016 var mikið leitað að illkvendinu Harley Quinn sem einmitt er kærasta Jokersins.