Leikarinn Bryan Cranston sýndi aðdáendum sínum á Instagram á dögunum hvernig hann gjörbreyttist í Walter White á einni mínútu fyrir Breaking Bad-myndina á Netflix. Reyndar virðist vinnan hafa tekið ansi langan tíma og er hraðspólað í gegnum breytingarnar á myndbandi Cranston.
„Ég veit ekki af hverju tökur tóku svona langan tíma, ég varð Walter White á einni mínútu,“ skrifar Cranston við myndbandið á Instagram og má greina kaldhæðni í texta hans.
Cranston sjálfur er með mikið hár fyrir 63 ára karlmann en er hins vegar með lítinn skeggvöxt. Akkúrat öfugt er farið með persónu hans Walter White sem er sköllóttur með yfirvaraskegg. Komu nokkrir aðilar að því að setja á Cranston gerviskalla, láta gerviskallann líta út fyrir að vera raunverulegan og búa til yfirvaraskegg á leikarann.
Útkoman er gjörsamlega óaðfinnanleg og er breytingin ótrúleg eins og sjá má hér að neðan.
View this post on InstagramA post shared by Bryan Cranston (@bryancranston) on Oct 21, 2019 at 9:12am PDT