Þriðja þáttaröðin af Venjulegu fólki er væntanleg í október í Sjónvarp Símans Premium. Hér er myndbrot úr nýju þáttaröðinni en Venjulegt fólk eru grínþættir með dramatísku ívafi. Við fylgjumst með Völu og Júlíönu sem hafa verið vinkonur frá því í menntaskóla takast á við lífið og tilveruna.
Serían fjallar um áframhaldandi vinskap milli Júlíönu og Völu. Þættirnir þeirra fá ekki góð viðbrögð og setur það leikferil þeirra í hættu. Fjármál Júlíönu snúast við til hins betra á meðan Vala verður gjaldþrota. Setur þetta vinskap þeirra í hættu? Breyta fjármál öllu?