Jamie Spears, faðir söngkonunnar Britney Spears, fer fram á tvær milljónir bandaríkjadala eða 251 milljón króna, gegn því að hann stígi til hliðar sem lögráðamaður dóttur sinnar. Þetta kemur fram í gögnum sem lögmaður söngkonunnar, Mathew Rosengart, skilaði inn til dómara í Los Angeles á mánudag.
Rosengart tók við máli Spears í lok júlí síðastliðinn og beið ekki boðanna og fór strax fram á það að faðir hennar yrði fjarlægður. Jamie Spears sagðist svo hinn 12. ágúst að hann myndi stíga til hliðar.
Hann ætlar þó ekki að segja sig frá málinu án þess að fá eitthvað í staðinn líkt og Rosengart orðar það í bréfi sínu til dómara. Hann segir Jamie Spears fara fram á um 2 milljóna greiðslu.
„Britney Spears mun ekki leyfa föður sínum að kúga sig. Herra Spears hefur heldur ekki réttinn til að halda dóttur sinni fanginni eða setja skilyrði við afsögn sína. Þetta snýst ekki um hann, þetta snýst um hvað er best fyrir dóttur hans, og samkvæmt lögunum þarf hann að stíga til hliðar. Jafnvel þó við leggjum lagalegu vandkvæðin til hliðar, ef hann elskar dóttur sína, ætti hann að segja af sér í dag, áður en honum verður gert að gera það,“ sagði Rosengart.