Þrír handfjötluðu byssuna

Alec Baldwin skaut af byssunni með þeim afleiðingum að kona …
Alec Baldwin skaut af byssunni með þeim afleiðingum að kona lést. Talið er að um slys hafi verið að ræða. AFP

Tveir starfsmenn á setti kvikmyndarinnar Rust höfðu handfjatlað byssuna sem leikarinn Alec Baldwin skaut úr, með þeim afleiðingum að kvikmyndatökukona lést í síðustu viku, áður en Baldwin skaut úr henni.

„Öll þrjú [Baldwin, aðstoðarleikstjóri og vopnavörður] hafa verið samstarfsfús og hafa gefið sínar yfirlýsingar,“ sagði lögreglustjórinn Adam Mendoza í samtali við blaðamenn síðdegis í dag. 

Lögmenn Rust gera sína eigin rannsókn

Mary Carmak-Altiwes saksónari sagði þá að enn sé unnið að rannsókn málsins en enginn hefur verið handtekinn eða ákærður vegna þess.

„Ef staðreyndir og sönnunargögn og lögin gefa tilefni til ákæru munum við ákæra,“ sagði Carmak-Altiwes. 

„Sem stendur eru allar dyr opnar í þessu máli. Ég tek ekki skyndiákvarðanir og flýti mér ekki að draga ályktanir.“

Lögmenn á vegum Rust munu framkvæma sína eigin rannsókn á atvikinu, að því er lögmannsstofan Jenner & Block hefur staðfest við BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson