„Amma tryllt á Tinder“

Hinir geysivinsælu þættir Venjulegt fólk snúa brátt aftur í fimmta sinn. Þar fer Halldóra Geirharðs á kostum í hlutverki móður Völu sem fer óhefðbundnar leiðir í móðurhlutverkinu eins og sjá má í bráðfyndnu broti úr væntanlegri þáttaröð. 

Gamanþáttaröðin fjallar um vinkonurnar Júlíönu og Völu sem starfa sem leikkonur. Dramað sem fylgir lífsgæðakapphlaupinu hefur ófyrirsjáanlegar afleiðingar og lífið svo sannarlega ekki bara dans á rósum.

Venjulegt fólk hefur algjörlega slegið í gegn hjá Íslendingum síðustu ár og eru eitt vinsælasta sjónvarpsefni Símans frá upphafi. Glassriver framleiðir þættina fyrir Símann en það er Fannar Sveinsson sem leikstýrir, en hann hefur einnig leikstýrt síðustu fimm þáttaröðum. Með aðalhlutverk fara sem áður Vala Kristín Eiríksdóttir, Júlíana Sara Gunnarsdóttir, Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst Backman. Auk þeirra leika stóra rullu þau Halldóra Geirharðsdóttir, Pétur Jóhann Sigfússon og Sigurður Þór Óskarsson.

Venjulegt fólk hefur slegið Íslandsmet sem eina leikna sjónvarpsþáttaröðin sem hefur verið framleidd í fimm þáttaröðum og það er einnig í bígerð sérstakur jólaþáttur eins og tíðkast oft erlendis. Það er því nóg að hlakka til. Öll þáttaröðin af Venjulegu fólki 5 er væntanleg í Sjónvarp Símans Premium 27.október. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson