Ástin blómstrar á ný hjá Beckham

Neistinn virðist hafa kviknað á ný milli Romeo Beckham og …
Neistinn virðist hafa kviknað á ný milli Romeo Beckham og Miu Regan. AFP

Fótboltamaðurinn Romeo Beckham, sonur stjörnuhjónanna Victoriu og Davids Beckhams, og fyrirsætan Mia Regan eru tekin aftur saman.

Þau slitu sambandi sínu í september síðastliðnum eftir þriggja ára samband, en nú virðist neistinn á milli þeirra hafa kviknað á ný. 

Fögnuðu afmæli fyrirsætunnar saman

Romeo og Mia sáust saman um helgina þar sem þau fögnuðu tvítugsafmæli fyrirsætunnar, en Romeo staðfesti samband þeirra á sunnudaginn við vef Daily Mail.

Parið fagnaði afmælisdeginum í góðra vina hópi, en Romeo deildi nokkrum gömlum myndum af kærustu sinni á Instagram í tilefni dagsins. 

Talið er að fjarsamband Romeos og Miu hafi tekið mikinn toll af þeim og að lokum orðið þess valdandi að þau ákváðu að fara hvort í sína áttina. Romeo eyddi miklum tíma í Bandaríkjunum þar sem hann spilar fótbolta með Inter Miami II en Mia var búsett í Lundúnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson