Græðgi, fíkniefni og kameldýr í Útrás

Simon J. Berger fer með hlutverk Adams í Útrás.
Simon J. Berger fer með hlutverk Adams í Útrás. Ljósmynd/NRK

Þriðja og síðasta þáttaröð norsku sjónvarpsþáttanna Útrás (Exit) fer í loftið á norska ríkissjónvarpinu NRK 2. mars næstkomandi. Gísli Örn Garðarsson er einn af leikstjórum þáttanna. NRK greinir frá.

Alls eru átta þættir í þáttaröðinni. Þrír þættir fara í loftið á NRK 2. mars og þrír þættir fara í loftið 9. mars. Síðustu tveir þættirnir fara svo í loftið 16. mars. Sýning Útrásar hefst 9. mars á RÚV og verða þættirnir sýndir á fimmtudagskvöldum.

Þættirnir nutu mikilla vinsælda hér á landi þegar þeir voru fyrst sýndir en þeir fjalla um fjóra félaga sem lifa og hrærast í norsku viðskiptalífi.

Gísli Örn Garðarsson er leikstjóri þáttanna ásamt Øysteini Karlsen sem …
Gísli Örn Garðarsson er leikstjóri þáttanna ásamt Øysteini Karlsen sem er líka höfundur þáttanna. mbl.is/Ásdís

Peningarnir flæða sem aldrei fyrr

Þættirnir eru vinsælustu dramaþættir Noregs og horfðu að meðaltali 2,1 milljón á fyrstu seríuna og 2 milljónir á aðra seríuna. Vinsældirnar ná út fyrir Noreg því þeir eru gríðarlega vinsælir á öllum Norðurlöndunum.

Í þriðju seríu sjá fjórmenningarnir sér leik á borði að í grænum fjárfestingum. Orkukrísa skellur á Evrópu og skipta þarf um takt. Peningarnir flæða þó sem aldrei fyrr.

Eins og kom fram þegar fyrstu tvær þáttaraðirnar fóru í loftið er handritið byggt á sögum frá norskum viðskiptamönnum og segir Øystein Karlsen, höfundur þáttanna, þá vera um 70% byggða á raunveruleikanum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson