Sást með annarri konu aðeins vikum eftir skilnað

Er Joe Manganiello búinn að finna sér nýja konu?
Er Joe Manganiello búinn að finna sér nýja konu? Samsett mynd

Leikarinn Joe Manganiello sást yfirgefa líkamsræktarstöð í Kaliforníu á miðvikudag ásamt töluvert yngri konu. Manganiello stendur nú í skilnaði við eiginkonu sína Sofíu Vergara, en þau tilkynntu um skilnað sinn fyrir tæplega tveimur mánuðum síðan.

Manganiello, 46 ára, sem er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt í Magic Mike, sást ásamt leikkonunni Caitlin O’Connor, 33 ára, yfirgefa Gold’s Gym í Venice eftir líkamsræktartíma. Ekki er vitað hvort að samband þeirra sé rómantískt eða á vinalegu nótunum, en parið keyrði í burtu á Cadillac-jeppa Manganiello.

Þau Manganiello og Vergara höfðu verið gift í sjö ár og var það hann sem sótti um skilnað frá leikkonunni. Ástæða skilnaðarins er sögð ágreiningur um barneignir, en leikarinn er fimm árum yngri en Vergara. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg