Landsnet semur við Thorsil

Suðurnesjalína 2 | 19. október 2015

Landsnet semur við Thorsil

Forstjóri Landsnets undirritaði í dag samkomulag um raforkuflutninga fyrir kísilver Thorsil ehf. í Helguvík. Gert er ráð fyrir að rekstur kísilversins hefjist í ársbyrjun 2018 og skal framkvæmdum Landsnets lokið í desember 2017. 

Landsnet semur við Thorsil

Suðurnesjalína 2 | 19. október 2015

Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsil, …
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsil, undirrita samning Landsnets og Thorsil í dag.

Forstjóri Landsnets undirritaði í dag samkomulag um raforkuflutninga fyrir kísilver Thorsil ehf. í Helguvík. Gert er ráð fyrir að rekstur kísilversins hefjist í ársbyrjun 2018 og skal framkvæmdum Landsnets lokið í desember 2017. 

Forstjóri Landsnets undirritaði í dag samkomulag um raforkuflutninga fyrir kísilver Thorsil ehf. í Helguvík. Gert er ráð fyrir að rekstur kísilversins hefjist í ársbyrjun 2018 og skal framkvæmdum Landsnets lokið í desember 2017. 

Fram kemur í tilkynningu að Landsnet skal, samkvæmt samkomulaginu, tryggja orkuflutninga til kísilvers Thorsil með tengingu við raforkuflutningskerfið á Reykjanesi. Það verði gert með lagningu 132 kílóvolta (kV) jarðstrengs milli Fitja og Stakks, tengivirkis Landsnets sem nú sé verið að byggja í Helguvík, og stækkun tengivirkisins. Undirbúningur að hönnun verksins hefst strax hjá Landsneti og er stefnt að því að fyrstu framkvæmdir hefjist haustið 2016.

„Þessi framkvæmd eykur afhendingaröryggi til viðskiptavina okkar í Helguvík því að tveir 132 kV jarðstrengir verða á milli Stakks, afhendingarstaðar okkar þar, og tengivirkisins á Fitjum að framkvæmdum loknum. Jafnframt styttist í að framkvæmdir hefjist við Suðurnesjalínu 2, milli Hafnarfjarðar og Rauðamels, sem styrkir flutningskerfið á Reykjanesi til muna og gjörbreytir afhendingaröryggi raforku fyrir bæði íbúa og fyrirtæki á svæðinu,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, í tilkynningu.

Þá segir að kostnaður við tengingu kísilvers Thorsil við meginflutningskerfi Landsnets og stækkun tengivirkisins Stakks í Helguvík sé áætlaður um 2,5 milljarðar króna. Áætluð aflþörf kísilvers Thorsil sé 87 megavött (MW) að jafnaði og verða framleidd um 54 þúsund tonn af kísilmálmi þar á ári í tveimur ofnum.

mbl.is