Áhrifavaldurinn Sólrún Diego og eiginmaður hennar Frans Veigar Garðarsson fagna sínu fyrsta brúðkaupsafmæli í dag. Hjónin héldu upp á daginn með nótt á hóteli í Reykjavík þar sem þau fóru í heilsulind og nutu lífsins.

Sólrún og Frans gengu í það heilaga í Háteigskirkju á þessum degi fyrir ári síðan og rifjaði Sólrún upp daginn á Instagram. „Þakklæti er mér efst í huga á þessum dásamlega degi, ég hreinlega skil ekki hvað ég gerði til að verðskulda að eyða ævinni með honum & börnunum okkar,“ skrifar Sólrún í færslu sinni á Instagram í dag.
Áður hafði Sólrún lítið gefið upp um brúðkaupið á Instagram hvar hún er með tæplega 40 þúsund fylgjendur. Þar að auki hafði hún bannað myndatökur en ýmislegt rataði þó á samfélagsmiðla.
Í brúðkaupinu var hugsað út í hvert smáatriði. Inni á baðherbergi kvenna voru til dæmis túrtappar, dömubindi, myntutöflur, eyrnapinnar, verkjalyf og hárlakk fyrir gestina og þess gætt að ekkert gæti stöðvað gleðina.
Borðskreytingar voru látlausar, hvítar rósir og brúðarslör í aðalhlutverki og skreytingin höfð á miðju hringborði og svo var skreytt með kertum í glærum kertastjökum í kring.
Á matseðlinum var rautt kjöt, Béarnaise-sósa og grænmeti og voru drykkirnir hvítvín, rauðvín og freyðivín.
Í eftirrétt var súkkulaðiterta á fjórum hæðum með ljósu smjörkremi sem skreytt var með hvítum blómum.
Friðrik Dór skemmti í brúðkaupinu og svo kom að því að hann tók lagið Skál fyrir þér og þá stigu brúðhjónin fram og tóku brúðarvalsinn undir þeim ljúfu tónum. Svo tók Dj Dóra Júlía við stjórninni og spilaði Spicegirls og fleiri smelli sem koma öllum í stuð.