Í daglegri meðferð vegna Lyme-sjúkdómsins

Lífsstílsbreyting | 23. júlí 2023

Í daglegri meðferð vegna Lyme-sjúkdómsins

Fyrirsætan Bella Hadid fer daglega í meðferð vegna Lyme-sjúkdómsins. Hefur hún í kjölfarið tekið sér frí frá sviðsljósinu.

Í daglegri meðferð vegna Lyme-sjúkdómsins

Lífsstílsbreyting | 23. júlí 2023

Bella Hadid tekur sér frí frá sviðsljósinu til að sinna …
Bella Hadid tekur sér frí frá sviðsljósinu til að sinna heilsunni. AFP/Dimitrios Kambouris

Fyrirsætan Bella Hadid fer daglega í meðferð vegna Lyme-sjúkdómsins. Hefur hún í kjölfarið tekið sér frí frá sviðsljósinu.

Fyrirsætan Bella Hadid fer daglega í meðferð vegna Lyme-sjúkdómsins. Hefur hún í kjölfarið tekið sér frí frá sviðsljósinu.

Heimildarmaður Entertainment Tonight staðfestir þetta, en orðrómur var um að hún væri í áfengismeðferð. Samkvæmt heimildarmanninum er það af og frá. Hadid hætti hins vegar að drekka af sjálfsdáðum fyrir níu mánuðum síðan.

Annar heimildarmaður bandaríska vefmiðilsins segir að hún hafi ákveðið að taka sér verðskuldað frí til að meðhöndla sjúkdóminn og að hún hafi aldrei átt við áfengis- eða fíkniefnavandamál að stríða.

Bella Hadid er ein af þekktustu fyrirsætum heims.
Bella Hadid er ein af þekktustu fyrirsætum heims. AFP/Julien de Rosa

Hadid greindist með Lyme-sjúkdóminn árið 2012 og hefur síðan þá talað opinskátt um veikindi sín. Samkvæmt Heilsuveru er Lyme-sjúkdómurinn smitsjúkdómur sem berst í menn eftir bit sýkts skógarmítils, en hann er ekki landlægur á Íslandi.

mbl.is