55 ára og heldur sér í formi með „rúmfimi“

Lífsstílsbreyting | 18. júní 2023

55 ára og heldur sér í formi með „rúmfimi“

Raunveruleikastjarnan og fasteignasalinn, Kelly Bensimon, er í fantaformi. Hún segir líkama sinn hafa byrjað að breytast eftir að hún gekk í gegnum tíðahvörf, en með réttu æfingunum og góðu mataræði hefur hún náð að missa 4,5 kíló og 22 cm á aðeins einum mánuði. 

55 ára og heldur sér í formi með „rúmfimi“

Lífsstílsbreyting | 18. júní 2023

Hin 55 ára gamla Kelly Bensimon er í fantaformi.
Hin 55 ára gamla Kelly Bensimon er í fantaformi. Samsett mynd

Raunveruleikastjarnan og fasteignasalinn, Kelly Bensimon, er í fantaformi. Hún segir líkama sinn hafa byrjað að breytast eftir að hún gekk í gegnum tíðahvörf, en með réttu æfingunum og góðu mataræði hefur hún náð að missa 4,5 kíló og 22 cm á aðeins einum mánuði. 

Raunveruleikastjarnan og fasteignasalinn, Kelly Bensimon, er í fantaformi. Hún segir líkama sinn hafa byrjað að breytast eftir að hún gekk í gegnum tíðahvörf, en með réttu æfingunum og góðu mataræði hefur hún náð að missa 4,5 kíló og 22 cm á aðeins einum mánuði. 

„Ég er 55 ára – líkaminn minn byrjaði að breytast eftir tíðahvörf,“ sagði Bensimon í samtali við Daily Mail á dögunum eftir að hafa misst 4,5 kíló og 22 cm á einum mánuði. Hún segir tíðahvörfin hafa haft mikil áhrif á þyngd hennar og skap. 

„Þetta hafði mikil áhrif á mig – tíðahvörf snúast um hormónin þín og það eru hormónin sem fá okkur til að borða. Svo er það allur gráturinn,“ útskýrði hún. „Móðir mín upplifði alvarleg tíðahvörf og ég hafði áhyggjur af því að ég myndi taka það út á börnunum mínum. Einkennin eru mismunandi,“ bætti hún við en hún segist hafa gengið í gegnum tíðahvörf seint á fertugsaldri.

„Ég stunda líka mikið kynlíf“

Bensimon stundar fjölbreytta hreyfingu til að halda sér í góðu formi. „Ég æfi líklega fjórum til fimm sinnum í viku. Ég fer á Equinox til að fara í Dance Body og Soul Cycle tíma en líkaminn minn er í því formi sem hann er vegna þess að ég stunda svo fjölbreytta hreyfingu. Ég stunda líka mikið kynlíf, það er góð hreyfing,“ sagði hún. 

Þegar kemur að mataræðinu leggur Bensimon mikla áherslu á hve mikilvægt það er að vera ekki svangur. „Sem tveggja barna móðir og fyrrverandi fyrirsæta þá skil ég afleiðingar þess að vera of mjór. Ég borða svo miklu meira í dag en ég hef nokkurn tíman gert,“ sagði hún. 

„Þetta snýst allt um að vera heilbrigður og hress. Hollur matur og heilbrigður lífsstíll er lykillinn að því að snúa klukkunni við,“ sagði raunveruleikastjarnan að lokum. 

View this post on Instagram

A post shared by DanceBody (@dancebody)

mbl.is