11 mánuðir í sambandi og ekkert kynlíf

Samskipti kynjanna | 8. janúar 2024

11 mánuðir í sambandi og ekkert kynlíf

Kona á í nýju sambandi við mann sem neitar að stunda kynlíf. Hún leitar ráða hjá sambandsráðgjafa The Times.

11 mánuðir í sambandi og ekkert kynlíf

Samskipti kynjanna | 8. janúar 2024

Einn forðast að stunda kynlíf með nýju kærustunni sinni.
Einn forðast að stunda kynlíf með nýju kærustunni sinni. Ljósmynd/Colourbox

Kona á í nýju sambandi við mann sem neitar að stunda kynlíf. Hún leitar ráða hjá sambandsráðgjafa The Times.

Kona á í nýju sambandi við mann sem neitar að stunda kynlíf. Hún leitar ráða hjá sambandsráðgjafa The Times.

Ég hef verið í sambandi við mann í ellefu mánuði en hann neitar að stunda kynlíf. Hann segir að ég sé svo sæt og hrein og getur ekki ímyndað sér kynlíf. Hann segir samt að hann muni leysa vandann. Á ég að reyna áfram eða bara gefast upp? 

Svar ráðgjafans:

„Allt hljómar þetta eins og hann sé í ruglinu og það er ekki til nein skyndilausn á því. Það eru eflaust margar mögulegar útskýringar á því að hann vill ekki stunda kynlíf. Kannski á hann erfitt með það af líkamlegum eða andlegum ástæðum. Ég held að afsökunin sem hann gefur þér sé bara átilla, hann skammast sín fyrir eitthvað en það að hann sé að varpa þessu yfir á þig er ekki góð hegðun. Hans kynhvöt er ekki á þína ábyrgð.

Þú getur reynt að styðja hann í þessu en þú þarft þess ekki. Hann þarf að horfast í augu við sjálfan sig og vinna í sér.

mbl.is