Sigga Dögg nakin í Argentínu

Heilsuferðalagið | 4. mars 2024

Sigga Dögg nakin í Argentínu

Sigríður Dögg Arnardóttir, betur þekkt sem Sigga Dögg kynfræðingur, er landsmönnum vel kunn. Hún rekur vefsíðuna Betra kynlíf og er þekkt fyrir að ræða opinskátt um kynlífstengdan fróðleik.

Sigga Dögg nakin í Argentínu

Heilsuferðalagið | 4. mars 2024

Sigga Dögg kynfræðingur Betra kynlífs.
Sigga Dögg kynfræðingur Betra kynlífs. mbl.is/Árni Sæberg

Sigríður Dögg Arnardóttir, betur þekkt sem Sigga Dögg kynfræðingur, er landsmönnum vel kunn. Hún rekur vefsíðuna Betra kynlíf og er þekkt fyrir að ræða opinskátt um kynlífstengdan fróðleik.

Sigríður Dögg Arnardóttir, betur þekkt sem Sigga Dögg kynfræðingur, er landsmönnum vel kunn. Hún rekur vefsíðuna Betra kynlíf og er þekkt fyrir að ræða opinskátt um kynlífstengdan fróðleik.

Sigga Dögg fékk dásamlegt tækifæri til að fækka fötunum og fagna frelsinu á ferðalagi sínu um Argentínu nú á dögunum. Í gærdag birti hún myndskeið á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hún sést ganga nakin um stærsta nektarsvæði í heimi, Yatan Rumi í Cordóba-fylki í Argentínu. Sigga Dögg er ófeimin, sátt í eigin skinni og hvetur fólk óspart til að fagna eigin líkama.

„Nektinni og frelsinu var heldur betur fagnað í heimsins stærsta nektarsvæði Yatan Rumi í Cordóba fylki í Argentínu,“ skrifaði Sigga Dögg við myndskeiðið. „Og já, það er skrýtið að sjá eigin krumpaða rass,“ bætir hún við.

View this post on Instagram

A post shared by Betra kynlíf (@betrakynlif)

mbl.is