Twitter: „Hvar er Auddi Blö?“

Eurovision | 2. mars 2024

Twitter: „Hvar er Auddi Blö?“

Sigur Heru Bjarkar í Söngvakeppni sjónvarpsins virðist ekki leggjast vel í netverja ef marka má þau tíst sem birtust á samfélagsmiðlinum X í kvöld eftir að úrslitin voru kunngjörð.

Twitter: „Hvar er Auddi Blö?“

Eurovision | 2. mars 2024

Þátttaka Palestínumannsins Bashar Murad í Söngvakeppninni hefur vakið heimsathygli og …
Þátttaka Palestínumannsins Bashar Murad í Söngvakeppninni hefur vakið heimsathygli og hefur Ísland skotist upp í veðbönkum fyrir vikið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sigur Heru Bjarkar í Söngvakeppni sjónvarpsins virðist ekki leggjast vel í netverja ef marka má þau tíst sem birtust á samfélagsmiðlinum X í kvöld eftir að úrslitin voru kunngjörð.

Sigur Heru Bjarkar í Söngvakeppni sjónvarpsins virðist ekki leggjast vel í netverja ef marka má þau tíst sem birtust á samfélagsmiðlinum X í kvöld eftir að úrslitin voru kunngjörð.

Hera Björk, sem flutti lagið Scared of Heig­hts, hafði betur gegn Palestínumanninu Bashar Murad, sem flutti lagið Wild West. Hafði honum verið spáð sigri í íslensku keppninni á ýmsum veðmálasíðum.

Margir voru fljótir að tjá sig um úrslitin eftir að sigurvegarinn var tilkynntur. Ljósmyndarinn Árni Torfason skrifar færslu á X, áður Twitter, þar sem hann kallar íslensku þjóðina heimska og misheppnaða fyrir vikið.

Ekki voru allir ósáttir. Heiðar Austmann, útvarpsmaður á K100, hrósaði flutningi Heru Bjarkar en kom með ábendingar. 

Mosfellingurinn Arnar Þór spyr hvar Auðunn Blöndal sé. Vitnar hann þar í þáttaseríuna Tekinn, sennilega í von um að úrslitin séu ekkert nema eintómt gabb.

Aðrir telja Bashar hafa verið með betra lag.




mbl.is