Bashar Murad tekur þátt í Falastinvision

Eurovision | 17. apríl 2024

Bashar Murad tekur þátt í Falastinvision

Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad tekur þátt í Falastinvision, söngvakeppni sem haldin er sem andsvar við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár. Ástæðan fyrir keppninni er þátttaka Ísrael í evrópsku söngvakeppninni. Falastinvision tilkynnti um þátttöku Bashar fyrr í dag.

Bashar Murad tekur þátt í Falastinvision

Eurovision | 17. apríl 2024

Bashar Murad sigraði fyrri kosninguna með talsverðum mun, en varð …
Bashar Murad sigraði fyrri kosninguna með talsverðum mun, en varð svo undir í einvíginu við Heru. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad tekur þátt í Falastinvision, söngvakeppni sem haldin er sem andsvar við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár. Ástæðan fyrir keppninni er þátttaka Ísrael í evrópsku söngvakeppninni. Falastinvision tilkynnti um þátttöku Bashar fyrr í dag.

Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad tekur þátt í Falastinvision, söngvakeppni sem haldin er sem andsvar við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár. Ástæðan fyrir keppninni er þátttaka Ísrael í evrópsku söngvakeppninni. Falastinvision tilkynnti um þátttöku Bashar fyrr í dag.

Bashar vakti heimsathygli fyrr á árinu þegar hann tók þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins með lagi sínu, Wild West. Hann komst áfram í seinni undanúrslitum söngvakeppninnar í febrúar og endaði í öðru sæti á sjálfu úrslitakvöldinu. Bashar laut í lægra haldi fyrir Heru Björk.

Keppnin fagnar palestínskri menningu

Falastinvision mun vekja sérstaka athygli á málefnum Palestínu og fagna palestínskri menningu. Keppnin er auglýst sem söngvakeppni án þjóðarmorða.

Öllum er velkomið að taka þátt og senda inn lag, hvar sem er í heiminum og sýna þannig almenningi í Palestínu stuðning. 

Aðalkeppni Falastinvision verður haldin sama dag og aðalkeppni Eurovision, 11. maí næstkomandi. Keppninni verður streymt um allan heim.

Mikil óánægja ríkir 

Víða hefur verið kallað eftir því að Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni vegna átakanna á Gaza.

Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva veittu Ísrael leyfi til að taka þátt eftir að landið breytti nafni og texta lagsins sem er framlag þeirra.

Lagið Hurrica­ne, hét fyrst October Rain og vísaði með bein­um hætti til árása Ham­as-sam­tak­anna hinn 7. októ­ber í fyrra, sem varð um 1.200 Ísra­els­mönn­um að bana

mbl.is