40-50 m há flóðbylgja gæti náð ströndum Bandaríkjanna

Hætta þykir á, að hluti af La Palma, helstu eldfjallaeyjunni á Kanaríeyjum, hrynji í sjó fram með þeim afleiðingum, að gífurleg flóðbylgja gangi á landi á eyjunum í Karíbahafi og á Flórída. Kemur það fram í grein eftir breskan vísindamann í vikuritinu New Scientist, sem kemur út á laugardag.

Í greininni segir Simon Day, sem starfar við rannsóknastöð í náttúruhamförum við University College í London, að stór hluti af La Palma sé mjög óstöðugur. Komi til þess, að hann skríði fram í sjó, muni það valda stórkostlegri flóðbylgju en áður eru dæmi um.

"Flóðbylgjan myndi fara á þotuhraða og ganga á land við allt norðanvert Atlantshaf," segir Day.

Forsöguleg skriða á Hawaii-eyjum

Sú kenning, að jarðskrið af þessu tagi, geti valdið mikilli flóðbylgju, hefur verið kunn í meira en 30 ár en hún á rætur í ummerkjum um slíkar hamfarir í ýmsum löndum í og við Kyrrahafið. Eru þau aftur rakin til gífurlegrar skriðu á Hawaii-eyjum.

Day, sem vann að rannsókninni í boði eldfjallamiðstöðvarinnar á Kanaríeyjum, var við mælingar á Cumbre Vieja, virku eldfjalli á suðurhluta La Palma, í tvö ár. Er það niðurstaða hans, að vesturhlutinn, um 500 milljarðar tonna af bergi, sé smám saman að losna frá eða eftir því sem eldvirknin færir meiri kviku upp á yfirborðið. Segir hann, að mikið gos í fjallinu gæti orðið til að koma skriðunni af stað.

20 km inn yfir landið

Hjá svissnesku tæknistofnuninni hefur verið reiknað út, að skriðan gæti komið af stað flóðbylgju, sem væri 650 metra há í fyrstu en 40-50 metrar þegar hún kæmi upp að ströndum Karíbahafseyjanna, Flórída og annarra ríkja á austurströnd Bandaríkjanna. Gæti hún gengið allt að 20 km inn yfir landið.

Í New Scientist segir, að menn greini á um hvenær líklegt sé, að þessar hugsanlegu hamfarir geti orðið en eldfjallið hefur aðeins gosið sjö sinnum á sögulegum tíma. Gaus það síðast 1971 og þá alveg syðst á eyjunni, allfjarri hinum óstöðuga vesturhluta fjallsins. Bendir það til, að oft megi gjósa áður en fjallið fer af stað.

París. AFP.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert