Mynd birt af Cho Seung-Hui

Cho Seung-Hui.
Cho Seung-Hui. Reuters

Lögreglan í Virginíu í Bandaríkjunum hefur í fyrsta skipti birt mynd af Cho Seung-Hui sem myrti 32 við tækniháskólann í ríkinu í gær. Cho var 23 ára gamall og stundaði nám í ensku við háskólann og bjó þar á heimavist. Enn hefur ekki verið útilokað að Cho hafi átt sér vitorðsmann við árásirnar auk þess sem lögregla hefur sagt að hann tengist ekki þremur sprengjuhótunum sem skólanum bárust í síðustu viku.

S-kóresk stjórnvöld héldu í dag blaðamannafund í utanríkisráðuneyti landsins í borginni Seoul, og sagði embættismaðurinn Cho Byung-je að stjórnvöld vonuðust til að árásin yrði ekki til þess að auka á fordóma eða til árekstra kæmi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert