Obama hafði betur í Flórída

Mitt Romney og Barack Obama.
Mitt Romney og Barack Obama. AFP

Fram kemur á fréttavef Huffington Post að niðurstöður liggi fyrir í Flórída vegna forsetakosninganna í Bandaríkjunum á þriðjudaginn og Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hafi unnið nauman sigur í ríkinu.

Samkvæmt yfirliti Huffington Post vegna niðurstaðna kosninganna fékk Obama 49,9% gildra atkvæða en Mitt Romney, frambjóðandi repúblikana, 49,3%.

Frétt Huffington Post

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert