Kýpverskir bankar verða lokaðir fram á fimmtudag

Allir bankar á Kýpur verða lokaðir fram á fimmtudag, en áður hafði verið tilkynnt um að allir nema tveir yrðu opnaðir á morgun. Með þessari frestun á að tryggja að starfsemi banka og fjármálafyrirtækja gangi eins vel og hægt verður, miðað við aðstæður.

Þetta tilkynngi  fjármálaráðherra landsins, Michael Sarris, í kvöld.

Fjármálamarkaðir brugðust neikvætt við fyrr í dag þegar Jeroen Dijsselbloem, fjármálaráðherra Hollands og formaður fjármálaráðherra Evruríkjanna, sagði að björgunaraðgerðirnar sem gripið var til vegna Kýpur gætu lagt línurnar fyrir önnur ríki sem kynnu að lenda í áþekkum vanda.

Nokkrum klukkustundum síðar tilkynntu yfirvöld á Kýpur um þessa frestun.

Allir bankar á Kýpur verða lokaðir fram á fimmtudag.
Allir bankar á Kýpur verða lokaðir fram á fimmtudag. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert