Hvaða maður er þetta?

Enginn virðist enn vita hvaða maður reyndi að túlka á táknmáli það sem helstu þjóðarleiðtogar heims sögðu við minningarathöfn um Nelson Mandela sem fram fór á íþróttaleikvangi í Soweto í S-Afríku í gær. Heyrnarlausir segja þessa uppákomu móðgun.

Þetta mál er mjög neyðarlegt fyrir stjórnvöld í S-Afríku. Fjölmiðlar hafa haft samband við ráðamenn í S-Afríku, en svörin eru ýmist á þá leið að vísa á einhvern annan eða að verið sé að kanna málið.

Stjórnvöld eru að rannsaka málið

Undir kvöld sendu stjórnvöld í S-Afríku frá sér yfirlýsingu þar sem segir að þau séu að rannsaka þetta mál, en þau séu ekki enn komin til botns í því. Tekið er fram að yfirvöld í S-Afríku leggi áherslu á að virða réttindi fatlaðra.

Bruno Peter Druchen, framkvæmdastjóri samtaka heyrnarlausra í S-Afríku, vakti fyrstur athygli á málinu, en hann skrifaði á Twitter eftir að athöfnin hófst, að þessi maður væri „trúður“ og bað um að hann yrði fjarlægður þegar í stað.

Margir heyrnarlausir eru öskureiðir yfir þessu máli. Þetta sé móðgandi við heyrnarlausa og baráttu þeirra fyrir viðurkenningu á táknmáli. Maðurinn hafi ekki einu sinni kunnað að segja „Takk fyrir“ á táknmáli.

Maðurinn notaði ekki nein svipbrigði þegar hann var að „túlka“, en svipbrigði eru mikilvægur þáttur í táknmálstúlkun.

Í s-afríska blaðinu City Press segir að maðurinn, sem er ekki nafngreindur, hafi „túlkað“ á fundi hjá Afríska þjóðarráðinu (ANC) fyrir einu ári. Talsmaður Afríska þjóðarráðsins vildi hins vegar ekkert um málið segja og sagði að minningarathöfnin hefði verið í umsjón ríkisstjórnarinnar en ekki ANC.

<br/><br/>
Túlkurinn sýndi almennt ekki mikil svipbrigði þegar hann var að …
Túlkurinn sýndi almennt ekki mikil svipbrigði þegar hann var að túlka yfir á táknmál. ALEXANDER JOE
Túlkurinn lét fara vel um sig við hliðina á Barack …
Túlkurinn lét fara vel um sig við hliðina á Barack Obama. PEDRO UGARTE
"Táknmálstúlkur" túlkar þar sem Barack Obama forseti Bandaríkja, sagði yfir á táknmál heyrnarlausra. ALEXANDER JOE
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert