Andrew John Hanam, lögfræðingur í Singapúr, hefur kært skólastjóra í virtum grunnskóla þar í landi fyrir að taka snjallsíma af syni hans. Fram kemur í frétt BBC að Hanam hafi lánað syni sínum snjallsímann sinn sem síðan var tekinn af honum þegar hann sást nota hann á skólatíma.
Skólinn hafði tilkynnt foreldrum í janúar að hann hygðist banna snjallsíma á skólatíma þar sem talið er að þeir hindri einbeitingu barnanna í tímum. Var syni hans sagt að hann fengi símann aftur að þremur mánuðum liðnum samkvæmt reglum skólans.
Hanam krefst þess að símanum verði skilað sem fyrst meðan á málsókn stendur en skólastjórinn segir að það myndi gefa börnunum röng skilaboð um notkun síma í skólanum ásamt því að hvetja til þess að fleiri foreldrar heimti að skólinn skili þeim símum barna þeirra.