Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði fyrr í dag að hann vildi að innflytjendur, hvaðanæva úr heiminum, kæmu til Bandaríkjanna. Ummæli forsetans í dag stangast á við harðan málflutning hans um ríki Afríku, Haítí og El Salvador í síðustu viku.
„Við viljum að fólk komi frá öllum stöðum,“ sagði forsetinn í dag þar sem hann var spurður um innflytjendamál. Í síðustu viku lýsti Trump nokkrum ríkjum Afríku auk Haítí og El Salvador sem „skítaholum“.
Þingmenn úr báðum stjórnmálaflokkum, demókratar og repúblikanar, sátu fund forsetans í forsetaskrifstofunni í Hvíta húsinu á fimmtudag en þar var rætt um mögulegar umbætur á innflytjendalöggjöf Bandaríkjanna.
Trump hefur sjálfur sagt að hann hafi ekki kallað áðurnefnd ríki „skítaholur“ en viðurkennir þó að hafa tekið býsna hraustlega til máls. Trump gagnrýndi Dick Durbin, öldungardeildarþingmann demókrata, sem var á fundinum og sagði að Trump hefði talað um „skítaholur“.