Breytir engu um staðreyndir málsins

Theresa May.
Theresa May. AFP

Tilkynning Rússa um að þeir ætli að vísa 23 breskum stjórnarerindrekum frá Rússlandi breytir engu um staðreyndina hver eitraði fyrir Skripal-feðginunum. Þetta sagði Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, í dag.

„Viðbrögð Rússa breyta ekki staðreyndum málsins; tilraun þeirra til að myrða tvær manneskjur í Bretlandi,“ sagði May.

Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, hefur sagt að ásakanir Breta séu …
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, hefur sagt að ásakanir Breta séu fáránlegar. AFP

May greindi frá því á miðvikudag að 23 rússneskum stjórnarerindrekum yrði vísað frá Bretlandi vegna málsins en Rússar svöruðu í sömu mynt í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert