Ekkjan sem endurheimti andlitið

Eftir aldarfjórðungs hlé getur ítalski þingmaðurinn Piera Aiello loksins brosað …
Eftir aldarfjórðungs hlé getur ítalski þingmaðurinn Piera Aiello loksins brosað óttalaus framan í heiminn. Ljósmynd/The Guardian

Ekkjan sem hlaut frægð sem „andlitslausi frambjóðandinn“ í þingkosningunum á Ítalíu fyrr á árinu felldi „grímuna“ í vikunni enda staðráðin í að láta mafíuna ekki stjórna lífi sínu lengur. 

Líf hennar breyttist í sviphendingu þegar tveir skuggalegir náungar gengu að kvöldlagi inn á flatbökustað þeirra hjóna, horfðu í augun á bónda hennar og skutu hann að því búnu til bana. Honum blæddi út í örmum hennar.

Voðaverkið átti sér stað í bænum Partanna á vestanverðri Sikiley árið 1991. Fjórtán ára gömul hafði Pieta Aiello verið þvinguð til að ganga að eiga son mafíuforingjans Vito Atria, Nicolò, og nú, áratug síðar, var hann allur. Engum blandaðist hugur um það hver bæri ábyrgð á víginu – mafían. Alveg eins og þegar faðir hans var ráðinn af dögum sex árum áður. Nicolò hafði rætt um hefndir og hinir vildu verða fyrri til.

Ákvað að bera vitni

Þrátt fyrir úrtölur og ástlaust hjónaband ákvað Aiello að standa í lappirnar og bera vitni gegn ódæðismönnunum. Það leiddi til handtöku og sakfellingar nokkurra alræmdra mafíósa á staðnum. Aðrir gengu þó áfram lausir og þar sem hún var orðin uppljóstrari var líf Aiello í bráðri hættu. Henni var nauðugur einn kostur: Að fara í vitnavernd tveimur árum eftir morðið á eiginmanni hennar, skipta um nafn og flytja búferlum frá Sikiley.

Í aldarfjórðung var Aiello í „fangelsi“ eins og hún orðar það í samtali við breska dagblaðið The Guardian. Vissulega náði mafían ekki í skottið á henni en lífið var dýru verði keypt; Aiello gat ekki um frjálst höfuð strokið og var sífellt á varðbergi. Það er að segja þangað til fyrr á þessu ári að hún ákvað að „taka aftur stjórnina á eigin lífi“ og bjóða sig fram til ítalska þingsins fyrir hönd Fimmstjörnuhreyfingarinnar róttæku.

Sætti framboðið miklum tíðindum; ekki bara í ljósi sögunnar heldur líka fyrir þær sakir að Aiello, sem verður 51 árs í næsta mánuði, fór bókstaflega huldu höfði í kosningabaráttunni. Allar ljósmyndir sem birtust af henni í blöðum og í auglýsingum voru skuggamyndir, þar sem andlitið mátti ekki þekkjast, og í sjónvarpsviðtölum sneri hún baki í myndavélina eða myndavélinni var hreinlega beint að gólfinu meðan hún hafði orðið. Stöku sinnum kom hún fram með slæðu fyrir andlitinu. Varð Aiello fyrir vikið þekkt sem „andlitslausi frambjóðandinn“.

Ekki háði það þó Aiello, sem náði kjöri í kjördæmi sínu á Sikiley.

Eftir að hafa setið á þingi í Róm í þrjá mánuði hefur Aiello komist að þeirri niðurstöðu að það sé of flókið mál að dulbúast lengur og felldi hún því „grímuna“ í vikunni. Og brosti framan í heiminn þegar fyrstu opinberu ljósmyndirnar voru teknar af henni í 25 ár. „Eftir öll þessi ár á bak við tjöldin get ég nú loksins horfst í augu við heiminn án þess að óttast að einhver sjái mig,“ sagði hún við The Guardian. „Þetta er eins og að lifna við; á þessu tiltekna augnabliki líður mér eins og ég sé algjörlega frjáls.“

Ekki svo að skilja að hversdagslegt líf taki nú við hjá Aiello. Mafían gleymir engu, frekar en fíllinn, og þingkonan mun hér eftir sem hingað til njóta ítrustu verndar og öryggisgæslu. Hafi mafían haft horn í síðu Aiello áður minnkar það ekki nú þegar hún hefur tekið upp markvissa baráttu gegn starfsemi hennar á þjóðþinginu. Síst virðist vera að draga úr skipulagðri glæpastarfsemi á Ítalíu og víðar og hefur Aiello skorið upp herör gegn mafíunni á breiðum grundvelli.

Verður hún ráðherra?

Í kosningabaráttunni og eftir að hún tók sæti á þinginu hefur Aiello líka verið óþreytandi að vekja athygli á stöðu fólks í hennar eigin sporum. „Ég á mér markmið; að vekja athygli þingheims á þeim dramatísku aðstæðum sem fólk sem ákveður að vitna gegn mafíunni neyðist til að búa við,“ segir hún.

Fjölmörg mafíuvitni hafa fagnað kjöri Aiello og jafnvel léð máls á því að hún verði aðstoðarinnanríkisráðherra í næstu samsteypustjórn landsins.

„Ég ákvað að bjóða mig fram til þess að þeir sem rísa upp gegn mafíunni gleymist ekki,“ sagði Aiello við The Guardian. „Ég gerðist frambjóðandi vegna þess að ég, Piera Aiello, vildi endurheimta andlit mitt. Og mér tókst það.“

Nánar er fjallað um Pieru Aiello í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert