Pussy Riot varpað strax aftur í steininn

Pyotr Verzilov (t.h.) stendur með lögreglumönnum í Moskvu í dag, …
Pyotr Verzilov (t.h.) stendur með lögreglumönnum í Moskvu í dag, áður en honum var ekið á lögreglustöðina við Lushniki-völlinn. AFP

Fjórir liðsmenn rússneska andófshópsins Pussy Riot voru teknir höndum af lögreglu í Moskvu í dag er þeir fögnuðu því að vera lausir úr haldi, eftir að hafa setið af sér fimmtán daga dóm fyrir að hlaupa inn á völlinn í úrslitaleik HM í Rússlandi 15. júlí.

Fréttamaður AFP-fréttaveitunnar sá hvernig þremur þeirra, Veroniku Nikulshinu, Olgu Kurachvu og Olgu Pakhtusovu, var þröngvað inn í lögreglubíl skömmu eftir að þeim var sleppt út haldi. Blaðamönnum á vettvangi var ekki gefin nein útskýring á handtökunni.

Fjórði liðsmaður hópsins, Pyotr Verzilov, var sömuleiðis tekinn höndum um leið og honum var sleppt úr öðru fangelsi í dag.

Farið var með fjórmenningana á lögreglustöðina Lushniki og þar var þeim tjáð, samkvæmt því sem Verzilov segir á Twitter-síðu sinni, að þeim sé gefið að sök að brjóta lög um opinberar samkomur.

Verzilov sagði sömuleiðis að þeim hefði verið sagt að þeim yrði haldið í varðhaldi til morguns hið minnsta.

Pussy Riot-liðsmennirnir fjórir trufluðu úrslitaleik HM í Rússlandi.
Pussy Riot-liðsmennirnir fjórir trufluðu úrslitaleik HM í Rússlandi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert