Malasískur eiturlyfjasali, sem nefndur hefur verið „ísmaðurinn“, var dæmdur til dauða í Taílandi í morgun.
Tun Hung Seong var dæmdur sekur um að reka eiturlyfjahring sem kom ágóðanum fyrir í rekstri löglegra fyrirtækja. Hann var handtekinn í apríl í fyrra þegar lögregla fékk ábendingu um að hann hefði fengið mann til þess að smygla 300 kg af kristalmetamfetamíni („ís“).
Að sögn rannsóknarlögreglunnar var hann yfirmaður eiturlyfjamarkaðarins í Malasíu við landamæri Taílands og stundaði peningaþvætti í gegnum karókístaði, hótel og veitingastaði.
Auk Tun voru tvær taílenskar konur og taílenskur karl einnig dæmd til dauða við réttarhöldin í morgun. Dómi yfir tveimur þeirra, karli og konu, var síðan breytt í lífstíðarfangelsi vegna þess hversu góðar upplýsingar þau veittu við rannsóknina.