Engin aðstoð borist til afskekktari byggða

Björgunarsveitir í Indónesíu hafa enn ekki komist á afskekkt svæði á eyjunni Sulawesi sem misst hafa samband við umheiminn í kjölfar jarðskjálftans og flóðbylgjunnar sem reið yfir síðasta föstudag. Vaxandi óánægju gætir í þeim byggðum þar sem engin aðstoð hefur borist.

Jarðskjálftinn mældist  7,5 stig og fylgdi sex metra há flóðbylgja í kjöl­farið. Staðfest er að um 1.400 hafa lát­ist í nátt­úru­ham­förun­um og er talið nán­ast óhugs­andi að nokk­ur finn­ist á lífi héðan í frá. Stjórn­völd í Indónesíu engu að síður sett föstu­dag sem síðasta mögu­lega dag til að finna ein­hvern á lífi í hús­a­rúst­un­um.

Björgunaraðgerðir hafa að stærstum hlut farið fram í borginni Palu, þar sem flestir hinna látnu hafa fundist. Það hefur vakið reiði íbúa annars staðar sem segja enga hjálp hafa borist.

Baiturrahman-moskan í Palu er meðal þeirra staða sem urðu illa …
Baiturrahman-moskan í Palu er meðal þeirra staða sem urðu illa úti í hamförunum. AFP

Sameinuðu þjóðirnar hafa þannig varað við því að enn hafi engin aðstoð borist þeim svæðum sem kunni að hafa orðið hvað verst úti og óttast menn að tala látinna muni hækka enn frekar þegar hjálparsveitir komast þangað.

„Björgunarteymin eru samt að vinna af fullu og eru að gera allt sem þær geta,“ hefur BBC  eftir Jen Laerke talsmanni mannúðarstarfs Sameinuðu þjóðanna.

Aurskriður sem hafa fallið, brýr sem hafa hrunið og símalínur sem liggja niðri gera björgunarfólki erfitt um vik að komast til afskekktustu byggðanna, en um 1,4 milljónir manna búa á hamfarasvæðinu og hafa að minnsta kosti 70.000 þeirra safnast saman í neyðarskýlum víða um eyjuna.

Í Donggala héraði, þar sem um 300.000 manns búa, sagði einn hjálparstarfsmaður við Reuters að „stjórnvöld vanti á svæðið“. „Það þurfa allir á matvælum og vatni að halda. Hér er hvorki matur, vatn, né eldsneyti,“ sagði hann.

Hjálpargögn berast til borgarinnar Palu. Íbúar á öðrum svæðum eru …
Hjálpargögn berast til borgarinnar Palu. Íbúar á öðrum svæðum eru ósáttir við að þangað hafi ekki borist aðstoð. AFP

Joko Widodo, forseti Indónesíu, er nú á sinni annarri ferð um hamfarasvæðið. Margir íbúar þeirra svæða sem orðið hafa illa úti hafa hins vegar gagnrýnt Widodo. „Forsetinn fær ekki að heyra af afskekktum stöðum, heldur bara um flóðbylgjuna og Palu,“ sagði  Yahdi Basma sem kemur frá svæði sunnan Palu.

„Hundruð manna eru enn grafin undir aur í mínu þorpi. Ég missti marga fjölskyldumeðlimi og nágranna. Engin hjálp hefur borist þangað og þess vegna erum við að fara.“

Þegar hafa rúmlega 500 manns verið grafin í fjöldagröfum og yfir 29 ríki hafa boðið indónesískum stjórnvöldum mannúðaraðstoð vegna skjálftans og flóðbylgjunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert