Mun taka nokkur ár að endurreisa Paradise

Loftmynd af einu hverfanna sem eldurinn lagði í rúst í …
Loftmynd af einu hverfanna sem eldurinn lagði í rúst í bænum Paradise. Talið er að það muni taka mörg ár að endurreisa bæinn. AFP

Nokkur ár mun taka að endurreisa bæinn Paradise, sem varð illa úti í gróðureldum sem geisað hafa í Kaliforníuríki að sögn stjórnanda FEMA, al­manna­varna Banda­ríkj­anna.

Brock Long, stjórnandi FEMA, segir skemmdirnar í Paradise vera einar þær verstu sem hann hafi séð. 56 manns hafa til þessa fundist látnir í Butte-sýslu í gróðureldunum sem fóru yfir Paradise og 130 til viðbótar er enn saknað.

Í Kaliforníuríki öllu er nú vitað til þess að 59 manns hafi farist í gróðureldunum, sem loga á þremur stöðum og vinna um 9.400 slökkviliðsmenn nú að því að ráða niðurlögum þeirra.

Hjálparstarfsmenn leita í húsarústum í Paradise að fórnarlömbum eldsvoðans. Tala …
Hjálparstarfsmenn leita í húsarústum í Paradise að fórnarlömbum eldsvoðans. Tala látinna í gróðureldunum er nú komin í 59. AFP

Ken Pimlott, slökkviliðsstjóri Kaliforníu, segir slökkvistarfið þokast í rétta átt. „Ég vil ítreka að mikil vinna er enn eftir, en við munum halda áfram að vera hérna. Við munum halda áfram þar til þessu er lokið,“ sagði Pimlott.

Átta manns til viðbótar fundist látnir í gær og voru þeir allir í bænum Paradise og næsta nágrenni. Yfirvöld í Butte-sýslu hafa birt lista yfir 103 sem þau telja að sé saknað og eru flestir þeirra eldri borgarar. 7.600 heimili hafa eyðilagst í eldunum til þessa, sem og hundruð annarra bygginga.

Jerry Brown, ríkisstjóri Kaliforníu, sagði ástandið minna mest á „stríðssvæði“ er hann var þar á ferð. „Það var búið að undirbúa mikið í Paradise fyrir svona neyðaratvik, en eldurinn var vissulega án fordæmis og yfirþyrmandi þannig að fólkið var þar fast,“ sagði Brown.

Eyðileggingin í Paradise er mikil eins og þessi loftmynd ber …
Eyðileggingin í Paradise er mikil eins og þessi loftmynd ber með sér, enda eru gróðueldarnir þeir mannskæðustu í sögu Kaliforníuríkis. AFP

Slökkvilið hefur nú náð tökum á um 35% af Camp-eldunum, sem eru orðnir þeir mannskæðustu í sögu ríkisins.

Þrír lét­ust í  Wools­ey-gróðureld­un­um og þar hafa yfir 240 km2 orðið eld­in­um að bráð, er það svæði sem er stærra að um­máli en borg­in Den­ver og nær m.a. yfir lúxus­í­búðahverfi í Mali­bu. Þar eru þekkt­ir ein­stak­ling­ar á borð við Miley Cyr­us, Ger­ald Butler og Neil Young í hópi þeirra sem misst hafa heim­ili sín. 435 bygg­ing­ar hafa eyðilagst í þeim eld­um og hjálp­ar­sveit­ir eru þar enn að störf­um, þó að búið sé að hleypa íbú­um að 11 svæðum á ný.

Þá hef­ur slökkvilið náð tök­um á um 95% Hill-gróðureld­anna, í Ventura-sýslu.

Brunarústir verslunarmiðstöðvar í Paradise.
Brunarústir verslunarmiðstöðvar í Paradise. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert