Greiða ekki lausnargjaldið

Falkevik var numin á brott 31. október síðastliðinn og mannræningjarnir …
Falkevik var numin á brott 31. október síðastliðinn og mannræningjarnir krefjast 9 milljóna evra í lausnargjald. AFP

Fjölskylda Anne-Elisabeth Falkevik Hagen fer að ráðum lögreglunnar og ætlar ekki greiða lausnargjaldið sem mannræningjar hennar hafa krafist. Þetta kom fram í máli Svein Holden, lögfræðings fjölskyldunnar, á blaðamannafundi í Ósló í dag. Hann sagði ákvörðunina hafa verið fjölskyldunni mjög þungbær. VG greinir frá.

Falkevik var numin á brott 31. október síðastliðinn og mannræningjarnir krefjast 9 milljóna evra í lausnargjald, sem samsvarar 1,2 milljörðum íslenskra króna. Eiginmaður Falkevik, Tom Hagen, skipar 172. sætið á lista yfir ríkasta fólk Noregs og eru eignir hans metnar á 1,7 milljarða norskra króna, sem svarar til um 23,7 milljarða íslenskra króna.

Fjölskyldan krefst þess nú að komast í samband við mannræningja Falkevik Hagen og fá á því staðfestingu að hún sé á lífi. Sé hún á lífi er fjölskyldan tilbúin að hefja samningaviðræður.

Lögreglan hefur unnið að rannsókn hvarfs Falkevik frá því það uppgötvaðist. Nokkrir norskir fjölmiðlar vissu af mannráninu en farið var að óskum lögreglu um að fjalla ekki um það opinberlega. Fjölskyldan hefur fulla trú á því að lögreglan geri allt sem hún geti til þess að hafa uppi á Falkevik Hagen og mannræningjum hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert