„Ég verð að gera þetta rétt“

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti er efins um að hægt verði að ná samkomulagi um fjárveitingu til landamæraeftirlits áður en þriggja vikna hléi á lokunum banda­rískra rík­is­stofn­ana lýkur.

Forsetinn ræddi við Wall Street Journal þegar 800.000 al­rík­is­starfs­menn sneru aftur til vinnu eftir 35 daga lokun; þá lengstu í sögu Bandaríkjanna.

Trump efast um að hann sé tilbúinn að lækka upphæðina sem á að fara í múrinn á landa­mær­um Banda­ríkj­anna og Mexí­kó. Hann hef­ur til þessa neitað að und­ir­rita fjár­laga­frum­varpið, þar sem demó­krat­ar hafa ekki viljað gera ráð fyr­ir 5,7 mill­arða doll­ara fjár­mögn­un múrs­ins þar í.

Annað fjárlagafrumvarp er til umræðu og hefur þingið til 15. febrúar til að koma í veg fyrir frekari lokanir.

Trump sagði að líkurnar á niðurstöðu sem allir gætu sætt sig við væru „minni en 50%.“

„Ég verð að gera þetta rétt,“ sagði forsetinn þegar hann var spurður að því hvort hann myndi sætta sig við minna en 5,7 milljarða dollara til að fjármagna múrinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert