Mótmælendur handteknir í Moskvu

Lögreglumenn handtóku fjölda mótmælenda í Moskvu í dag.
Lögreglumenn handtóku fjölda mótmælenda í Moskvu í dag. AFP

Rússneska lögreglan hefur handtekið rúmlega 200 manns fyrir utan ráðhúsið í Moskvu höfuðborg Rússlands í dag. Þar var fjöldi fólks saman kominn til þess að krefjast frjálsra kosninga.

Þúsundir manna boðuðu þátttöku sína í mótmælunum eftir að stjórnvöld neituðu stjórnarandstæðingum og óflokksbundnum frambjóðendum að gefa kost á sér.

AFP

Stjórnvöld segja mótmælin ólögmæt og var mikill viðbúnaður lögregluyfirvalda í borginni.

AFP
AFP




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert