Utanríkisráðherra Írans beittur þvingunum

Mohammad Javad Zarif, utanríkisráðherra Írans.
Mohammad Javad Zarif, utanríkisráðherra Írans. AFP

Bandaríska fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að beita Mohammad Javad Zarif, ut­an­rík­is­ráðherra Írans efnahagsþvingunum. Aðgerðirnar frysta allar eignir Zarif í Bandaríkjunum og hafa einnig áhrif á ferðalög ráðherrans.

Steven Mnuchin fjármálaráðherra sagði að Zarif væri helsti talsmaður Írans á alþjóðavettvangi. Bandarísk stjórnvöld vildu með þessu senda stjórnvöldum í Tehran þau skilaboð að hegðun þeirra uppá síðkastið sé óásættanleg.

Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því í lok síðasta mánaðar að ákveðið hefði verið að beita Ayatollah Ali Khamenei, erkiklerk og æðsta ráðamann Írans, „grimm­um“ efna­hagsþving­un­um.

Háttsettur maður í Trump-stjórninni sagði að ímynd Zarif, sem byggði á góðri enskukunnáttu eftir námsdvöl vestanhafs, væri ósönn. Zarif væri áróðursmálaráðherra, ekki utanríkisráðherra.

Sjálfur sagði Zarif að stjórnvöld í Bandaríkjunum væru að reyna að þagga niður í Írönum. Hann spurði hvort það væri virkilega svona erfitt að heyra sannleikann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert